Hér blogga tengdadætur Finnlands

bloggsvæði tengdadætra finnlands

12.10.2007 17:46:46 / Finnland

ferðalag tófu um haust

Sælar vinkonur. Eins og þið kanski vitið erum við yrðlingurinn að koma í heimsókn til Helsinki í haustfrínu síðustu helgina í október. Það væri frábært ef við myndum sameinast í saumaklúbbi á þessari helgi. Við músla höfum verið að tala um laugardaginn og þá væri gaman ef maður gæti hóað í fleiri spendýr af íslenskum uppruna til að hittast á einhverri knæpunni seinna um kvöldið! Hvað segið þið um þetta? Bestu kveðjur Tófan

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 08:11:01 / Finnland

Skolabudir

Hae öll yndislegu dýr naer og fjaer!

Vid laxinn og rjupan erum í skólabúdunum í Finns tetta árid. Rosalega gott vedur og allir eru ad skemmta ser vel. Tad er ljódraent tema tetta árid. Bidjum ad heilsa ykkur öllum og vonandi sjaums vid sem fyrst.

 knúsar,

 Laxinn og rjúpan og fylgidýrin saetu :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 18:08:38 / Finnland

Draumur

Sæl dýrin mín. Voða eruð þið nú léleg að skrifa hérna. Og þar sem við erum nú mikið á sitthvoru staðnum ættum við einmitt að nýta þetta betru. Reynum að vera duglegri! :)

 Mig dreymdi Músina í fyrri nótt. Hvernig líður henni? Búin að eiga?

Og hvað er svo að frétta af Lundanum. Búin að eiga? (var það ekki annars Lundinn sem er á norðurlandinu).

Hvað segir svo ofurmamman Laxinn, sem er búin að eiga.

Eða Tófan, sem þegar á eitt.

Og Rjúpan sem á alveg tvö

.....að eiga, nýbúin að eiga, eigandi.......

Meee. Fór í göngutúr í morgun. Yndislegt veður. Skýjað, þurt og vindur. Svo ferskt veður! Sat í grasinu í dalnum og naut vindsins þangað til stór hvolpur kom hlaupandi að mér og slefaði mig alla út, oj!.......æi, hann var nú svoldið sætur greiið. En núna er komið slagveður. Það er þó frábært að fara í göngutúr í slagveðri, mjög hressandi. Held að ég fari þó á Skódanum mínum til foreldra minna. Læt einn göngutúr nægja í dag.

Knús frá Rollunni


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 18:27:39 / Finnland

Sælar

Kæru dýr. En hvað þetta er gaman. Á laugardaginn fór ég að hitta Laxinn (by the way, ég er með lax á pönnunni núna......), svo á sunnudaginn hitti ég Tófuna á Árbæjarsafninu, það var nú skemmtilegt fyrir okkur Rolluna og Tófuna að hittast á svo þjóðlegurm stað. Ég vona bara að þú hafir látið fallegu hænurnar vera......En í dag hitti ég svo Músina okkar í Maður Lifandi, sem sagt, Húsamús fyrst hún var þar sem menn lifa s.b. Maður Lifandi.

Hlakka til að sjá ykkur í grillinu!!!

Knús frá mjúkri Rollu :)

P.S. Lax, var það ekki bara einmitt við hæfi að ég Rollan gæfi sílinu ykkar ullarvöru? hahaha :D já og svo söguna af okkur dýrunum :D þetta var nú alveg tilviljun hjá mér.


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 15:35:54 / Finnland

sumarkveðja til dýranna

Sælar stelpur. I dag er sumardagurinn fimmti og í morgun var hvítur snjór yfir öllu hér í Reykjavík en svo fór sólin að skína. Nú er vorstemning hér og var því notalegt að labba niður "laugsa". Hvað segja tengadætur Fnnlands? langt er síðan við blogguðum og hneggjuðum og bauluðum, já og gögguðum, Það gera tófur eins og ég. Sumarkveðjur; Tófan sleipa.

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.11.2005 00:50:06 / Finnland

ringring

veióveió. Er á leiðinni að hringja í tófuna og lundann. oooh verð að vera duglegri að skipuleggja tímann, svoldið mikið að gera.

Knúsknús til allra.

Rolland


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.10.2005 16:19:03 / Finnland

Dýrin mín

Sæl dýrin mín. Hef ekki verið í nettengingu síðan um miðjan Júlí. Það væri nú gaman að halda saumaklúbb á Íslandi. Kemur Lundinn nokkuð í bæinn? Hef sjálf verið á leiðinni til Akureyrar síðan í sumar, og hef þá haft í huga að droppa við hjá Lundanum. En ekki hefur ennþá orðið af þeirri ferð, alltaf eitthvað sem kemur í veg fyrir það. En þið eruð velkomnar í kaffi til mín, ég skal bjóða ykkur upp á te og kaffi í múmínbollum og kökku (eða eitthvað hollara) af arabíadiskum ;) Ég er komin með heima síma og nýtt tölvupóstfang, það er eins og hotmailið mitt (hljóðfærið mitt+gælunafn, en ekki c) nema bara símnet.is. Allt litlir stafir og engar línur. Ég er einnig komin með heimasíma, eins og hjá mömmu og pabba nema að næstsíðasti stafurinn er 5 yahoo-ið virkar þó ennþá, en hotmail-ið er alltaf frekkar fullt. Kveðja frá Rollunni.

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.09.2005 06:32:44 / Finnland

Haustkveðjur :)

Sælar og blessaðar allar saman nær og fjær!

 Hvað er að frétta af ykkur öllum sætu dýrum? Langt síðan ég hef komið hingað inn og kvittað fyrir mig. Allt gott ad frétta af mér og mínum gott ad vera komin tilbaka eftir kærkomið sumar á íslandi. Nú fer að líða að næsta dýraklúbbi þó helmingurinn sé farinn til Íslands og sé sárt saknað. Við músin vorum að tala um að fimmtudagarnir yrðu hentugir hvað segið þið hinar um það. Ég get ekki byrjad í þessari viku því við veiðimaðurinn erum ad fara til Köben á sýningu hjá stóru sys þannig að hvernig hljómar þá fimmtudagurinn 6. óktóber í næstu viku???

 Hafið það gott og verum nú duglegar að blogga með haustinu,

 

Ykkar Lax


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.08.2005 15:39:15 / Finnland

blessuð blíðan

jú það gengur bara vel, Rjúpa sæl. Veðrið var reyndar grátt og leiðilegt en í gær tók að hlyna og í dag er yndislegt veður. Ekkert er eins yndlislegt og ísland í blíðviðri. Kætir lund! :oByrjaði daginn á morgunsundi  í suðurbæjarlaug hafnafjarðar með mömmu í morgun og horfi á glampandi hafið úr heita pottinum. Siðan kaffi á veröndinni. Ekta lifsgæði.is! Hér eru bara allir a hlyrabolum í góða veðrinu. Er nú komin aftur í Laugadalinn. Fór í dagstúr með vini Rjupunnar, og okkar hinna, honum Pasa í gær. Vildi sýna honum 'orginal' stað og dró hann með mér á Kaffivagninn. Thar bordudum vid rækjusamlokur og kleinur og sjómenninrir reyktu ofaní greyid Pasa. 'Eg held hann hafi bara kunnað vel við þennan göngutúr um höfnina. Svo löbbuðu meðfram sjónum alla leið að húsi Hrafns Gunnlaugsonar á Lauganesi. Mikið er það skrýtið hús og lóð. -Risa njólar, litlar tjarnir og, beinhrúgur og líkneski! Jæja vinkonur mínar. Segiði mér fréttir!

knús. Tófa

'


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.08.2005 11:40:35 / Finnland

tófa á heimslóðum

Hingað er nú skrytið að vera komin. Rok og rigning og þungbúinn himinninn. Fór og heimsótti nýja vinnustaðinn í gær uppí Ártúsnholti og þurfti að labba langa leið úr strætó. S-5 fór bara alls ekki inn í holtið. Það er ny búið að breyta leiðarkerfinu og komnir s-vagnar og númeravagnar, svolítið ruglandi. Ég stóð ásamt eldri konu við Hlemm og við bara gátum ekki fundið útúr því hvar ætti að fara upp í s-3 og s-5 svo ég hljóp og spurði vagnstjóra s-2 hvort þetta væri eitthvað merkt og hann svaraði; -"það stendur á malbikinu!". Ég kváði og Vagnstjórinn sagðí; -"Jújú, Það er búið að spreyja þetta á malbikið" Ég stökk á stað og sá að það var mikið rétt búið að spreyja með gulu á götuna, tölurnar 1 uppí 5. Mjög gott sýstem hjá SVR. Enda þeir fáu sem nota strætisvagnana kannski ekki miklar kröfur! Það eru víst allir á bíl. Mér var sagt að það væru 4 bílar á fjölskyldu. Fýk semsagt svolítið um hérna í rokinu, (og reyni að finna strætisvagna) Fæ vonandi fótfestu þegar ég flyt inn í ibúðina (eftir nokkra vikur) og vinna og skóli byrjar. Annars er ég rosalega ánægð með Laugalækinn, frábær staður. Laugarnar við næsta horn, stutt í bæinn. Mín kæru dýr í Finnlandi. Hugsa til ykkar. Við hinar sem staddar eru á landinu ættum kannski að hafa saumaklúbb? Knús til ykkar allra. Lágfóta

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.08.2005 08:59:32 / Finnland

Bráðvantar símaskrá

Sælar allar,

Á einhver ykkar símaskrá Íslendingafélagsins? Tölvan okkar krassaði og allt datt út. Væri einhver ykkar til í að senda mér hana?

kv. Áslaug


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.07.2005 13:32:41 / Finnland

hvar erud thid stöllurnar minar

Sael kaeru dyrin min.

Hvar erud thid allar? Ég hef verid hálfgerd húsmús í sumar og meira eda minna verid ad vinna ad ritgerdinni minni sem er nú ad klárast. Var í gaer og aetla í dag eftir skrif ad fara og hjálpa tófunni ad pakka. En hún eins og thid vitid er ad flytja aftur upp eftir nordur í náttúruna eins og aeji desus stelpur ég man ekki lengur hvad ölll dýrin heita. Var thad ekki Lundin sem er einnig ad flytja uhhhh.... Laxinn er á Íslandi en hvar er kisa? Ég man thú sagdir kisan mín ad thid kisulórurnar vaerud ad fara til Ìslands í lok júlí. Erud thid thar núna? Ef svo er hvenaer komid thid heim? Alltaf gaman ad heyra frá thér Rollan mín og meira hvad thú skrifar skemmtilega. Ég er ad fá fólk í gistingu á föstudaginn 29.7 og aetladi thví ad ath. med dínurnar Kisan mín. Ef thú verdur ekki komin thá fae ég bara lánad annarstadar frá No probbbb. Jaeja stelpur látid thid nú heyra frá ykkur. Med godri kvedju úr músarholunni, mús 


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.07.2005 19:51:48 / Finnland

Sveitin

Sæl dýrin mín. Það er búið að vera voða fínt hjá mér og Elgnum í sumar. Ég var svoldið spennt að sjá hvernig Elgnum mínum mundi reiða af í íslensku náttúrunni (ekki það að hann hafi ekki verið hrifinn af íslenskri náttúru hingað til hehe ;) ) en hann hefur unað sér mjög vel hérna í sveitinni. Það er náttúrulega mikill fengur fyrir okkur að hafa góða sundlaug alveg við hliðina á okkur, förum við því oft í laugina. Já, ég fór nefninlega í vax í London í fyrsta sinn, rétt áður en við komum til Íslands, og er því ullin ekkert að þvælast fyrir mér. Ákvað að fara í vax í þetta skiptið í staðin fyrir að láta rígja mig. Jæjajá, þannig er nú það. Annars er mjög mikið af frændfólki mínu hérna í kring, hef ég talið upp í um 50-60 ættingja stundum. Þeir eru voða sætir :) Ættingjar mínir eiga náttúrulega ekki að vera hérna alveg ofaní hótelinu og skítandi á tjaldsvæðið og við innganginn á hótelinu :lol:, en þeir fara kannski bráðum að tígja sig upp á fjöllin blessaðir.

Endilega komið í heimsókn ef þið eruð á landinu!

Kær kveðja frá Rollunni


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.06.2005 08:22:47 / Finnland

Frá Tófunni

Hvernig væri að við, dýrin eru eftir í borginni myndu hittast á næstunni. Tildæmis yfir rauðvíni á fjölförnum stað eða í mat í Tófugreni? Kveðjur Tófan

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.06.2005 15:12:10 / Finnland

Dýraklúbbur í Laxá á morgunn!

Kæru sætu dýr!
Velkomin öllsömul í Laxá á morgunn. Sumarþema, ætla ad gera salat og pinnamat. Þið megið koma með hvað sem ykkur þykir gott. Hlakka til ad sjá ykkur, saunan verður heit um sexleytið fyrir þær sem vilja..

Knúsar
Laxý

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5